Já það er orðið langt síðan síðast, verð trúlega að fara að fá mér nýjan ritara þessi sem ég hef er ekki alveg að standa sig
. Annars er allt gott að frétta af mér ég dafna eins og blóm í eggi. Við mamma höfum verið meira og minna tvær frá áramótum en stóri bróðir minn hann Baldur er komin á sjó og ég sakna hans voðalega mikið. Á föstudaginn kemur pabbi heim frá Hólum og verður þá alveg heima hjá okkur mömmu en hann ætlar að vera í fjarnámi restina af skólaárinu.
Ég er orðin rosalega dugleg að lesa og les fyrir mömmu á hverjum degi, segist vera að æfa mig fyrir skólann
. nú er að koma mynd á skólann minn en ég fylgist spennt með hvernig þeim gengur að byggja hann.
Í sumar þá ætlum ég, mamma og pabbi að vera á Núpi í Dýrafirði allt sumarið og ég bíð spennt eftir því, finnst tíminn allt of lengi að líða þangað til ég hætti á leikskólanum. Við ætlum að taka smá forskot á sæluna og vera á Núpi yfir páskana og Harpa, Guðrún og Soffía frænkur mínar verða þar líka með sínar fjölskyldur þannig að það stefnir í mikið gaman mikið fjör
Um síðustu helgi þá gistu þeir frændur mínir í Löngumýrinni hjá okkur á föstudaginn og ég fékk svo að fara með þeim á laugardaginn og vera hjá þeim fram á sunnudag ekkert smá gaman hjá okkur Kormáki, enda erum við bestu vinir.
bæjó þangað til næst
Helga Guðrún





. Aldrei má maður ekki neitt
